Tilraunaborun á Grundartanga
14. október 2026

Borunin er liður í samstarfsverkefni sem miðar að því að kanna möguleika á varanlegri bindingu koltvísýrings í berglögum og styður við þróun græns iðngarðs á Grundartanga.

Borun rannsóknarholu á Grundartanga stendur nú yfir og hefur gengið vel. Borunin er hluti af samstarfsverkefni Þróunarfélags Grundartanga, Elkem, Orkuveitunnar og dótturfélaga hennar, þar á meðal Carbfix, sem miðar að því að kanna möguleika á að binda koltvísýring varanlega í berglögum.

Carbfix hefur þróað aðferð þar sem koltvísýringur er leystur upp í vatni og dælt niður í berglög, þar sem hann binst með tímanum í formi steinda. Rannsóknarborunin er mikilvægur liður í að kanna aðstæður til slíkrar bindingar á Grundartanga.

Verkefnið fellur vel að áherslum um uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga, þar sem lögð er áhersla á nýsköpun, sjálfbærni og samstarf fyrirtækja um lausnir sem stuðla að minni umhverfisáhrifum iðnaðarstarfsemi.

Nánar má lesa um borunina í frétt RÚV frá 14. október.

12. desember 2025
Aurora fiskeldi og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit miðvikudaginn 17. desember n.k kl. 17:30. Kynning á niðurstöðum umhverfismats er hluti af umhverfismatsferli og mikilvægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér helstu niðurstöður og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Dagsskrá: 1. Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina 2. EFLA mun fara yfir helstu niðurstöður umhverfismats. 3. Spurningar og svör Almenningur og hagaðilar er hvattir til að mæta.
14. nóvember 2025
Fimmtudaginn 13. nóvember sl. skrifuðu Þróunarfélag Grundartanga , Elkem, Orkuveitan, Orka Náttúrunnar og Carbfix undir viljayfirlýsingu um aukin umsvif loftslagavænnar starfsemi á Grundartanga. Horft verður m.a. annars til samstarfs vegna verkefna sem snúa að uppbyggingu varmavirkjunar og nýtingu glatvarma frá Elkem sem nýta má fyrir nýja og fjölbreytta atvinnustarfsemi ásamt föngun og binidngu kolefnis frá útblæstri Elkem. Guðjón Steindórsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Grundartanga: „Við höfum unnið lengi og markvisst að þróun græns iðngarðs hér á svæðinu og nú erum við farin að sjá það komast á framkvæmdastig. Nú þegar eru öflug fyrirtæki starfandi á Grundartanga og mikill áhugi er meðal nýrra fyrirtækja á að koma og starfa hér í samræmi við stefnu græns iðngarðs. Þar má m.a. nefna félög í magnesíumvinnslu, landeldi, grænu eldsneyti og fóðurframleiðslu. Samstarf þessara aðila styrkir verulega grunninn að því að þessi verkefni verði að veruleika á næstunni.“ Miklar vonir eru bundnar við þessa samvinnu sem er í takt við sýn Þróunarfélagsins fyrir svæðið og styður með beinum hætti við grænan iðngarð með hringrásarhugsun.
6. ágúst 2025
Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit hafa bæði sent frá sér yfirlýsingar vegna fyrirhugaðra tolla ESB á kísiljárn. Þar er þess krafist að ríkisstjórn Íslands geri allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir breytingarnar, en ef af verður er ljóst að tollarnir geta haft umtalsverð áhrif á starfsemina á Grundartanga og þar með á nærliggjandi sveitarfélög. Þar er einnig vísað til þeirrar uppbyggingar sem stefnt er að á Grundartanga á komandi misserum og nú er sett er í uppnám. Hér eru hlekkir á yfirlýsingar sveitarfélaganna: Frétt Akraneskaupstaðar Frétt Hvalfjarðarsveitar
Fleiri færslur