Föngun CO2 á Grundartanga
8. nóvember 2024

Nýlega skrifaði Carbon Iceland undir samning við Norðurál um að taka fyrstu skrefin í að aðlaga fyrirliggjandi tækni við CO2 föngun frá álveri félagsins á Grundartanga. Ætlunin er að nýta þann koltvísýring sem fangaður er til framleiðslu á grænu eldsneyti sem m.a. getur nýst fiskiskipaflotanum og þannig stutt við orkuskipti. Gert er ráð fyrir að CO2 föngunin geti hafist árið 2028.

Verkefnið er hluti að samstarfi innlendra- og erlendra tæknifyrirtækja um að fanga þá losun sem kemur frá stóriðju á íslandi en Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ýtt verkefninu úr vör. Föngunin byggist á búnaði og þekkingu frá Mitsubishi Heavy Industries og Siemens Energy.

Verkefnið er í samræmi við uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga auk þess að vera í takt við stefnu stjórnvalda og sveitarfélaga um þróun í átt að hringrásarhagkerfi og styður við aðgerðaráætlun í loftlagsmálum.

14. október 2026
Borunin er liður í samstarfsverkefni sem miðar að því að kanna möguleika á varanlegri bindingu koltvísýrings í berglögum og styður við þróun græns iðngarðs á Grundartanga.
12. desember 2025
Aurora fiskeldi og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit miðvikudaginn 17. desember n.k kl. 17:30. Kynning á niðurstöðum umhverfismats er hluti af umhverfismatsferli og mikilvægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér helstu niðurstöður og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Dagsskrá: 1. Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina 2. EFLA mun fara yfir helstu niðurstöður umhverfismats. 3. Spurningar og svör Almenningur og hagaðilar er hvattir til að mæta.
14. nóvember 2025
Fimmtudaginn 13. nóvember sl. skrifuðu Þróunarfélag Grundartanga , Elkem, Orkuveitan, Orka Náttúrunnar og Carbfix undir viljayfirlýsingu um aukin umsvif loftslagavænnar starfsemi á Grundartanga. Horft verður m.a. annars til samstarfs vegna verkefna sem snúa að uppbyggingu varmavirkjunar og nýtingu glatvarma frá Elkem sem nýta má fyrir nýja og fjölbreytta atvinnustarfsemi ásamt föngun og binidngu kolefnis frá útblæstri Elkem. Guðjón Steindórsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Grundartanga: „Við höfum unnið lengi og markvisst að þróun græns iðngarðs hér á svæðinu og nú erum við farin að sjá það komast á framkvæmdastig. Nú þegar eru öflug fyrirtæki starfandi á Grundartanga og mikill áhugi er meðal nýrra fyrirtækja á að koma og starfa hér í samræmi við stefnu græns iðngarðs. Þar má m.a. nefna félög í magnesíumvinnslu, landeldi, grænu eldsneyti og fóðurframleiðslu. Samstarf þessara aðila styrkir verulega grunninn að því að þessi verkefni verði að veruleika á næstunni.“ Miklar vonir eru bundnar við þessa samvinnu sem er í takt við sýn Þróunarfélagsins fyrir svæðið og styður með beinum hætti við grænan iðngarð með hringrásarhugsun.
Fleiri færslur