Heimsókn ráðherra í Hvalfjarðarsveit
5. apríl 2023

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Magnús Guðmundsson, rekstrarstjóri hjá sama ráðuneyti og Haraldur Benediktsson, nýráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, heimsóttu Hvalfjarðarsveit þann 4. apríl sl. og fengu kynningu á helstu viðfangsefnum sveitarfélagsins.

Þróunarfélag Grundartanga kynnti sína starfsemi á fundinum og fór m.a. yfir stöðu græns iðngarðs með hringrásarhugsun á Grundartanga og þau verkefni sem garðurinn vinnur að.

14. nóvember 2025
Fimmtudaginn 13. nóvember sl. skrifuðu Þróunarfélag Grundartanga , Elkem, Orkuveitan, Orka Náttúrunnar og Carbfix undir viljayfirlýsingu um aukin umsvif loftslagavænnar starfsemi á Grundartanga. Horft verður m.a. annars til samstarfs vegna verkefna sem snúa að uppbyggingu varmavirkjunar og nýtingu glatvarma frá Elkem sem nýta má fyrir nýja og fjölbreytta atvinnustarfsemi ásamt föngun og binidngu kolefnis frá útblæstri Elkem. Guðjón Steindórsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Grundartanga: „Við höfum unnið lengi og markvisst að þróun græns iðngarðs hér á svæðinu og nú erum við farin að sjá það komast á framkvæmdastig. Nú þegar eru öflug fyrirtæki starfandi á Grundartanga og mikill áhugi er meðal nýrra fyrirtækja á að koma og starfa hér í samræmi við stefnu græns iðngarðs. Þar má m.a. nefna félög í magnesíumvinnslu, landeldi, grænu eldsneyti og fóðurframleiðslu. Samstarf þessara aðila styrkir verulega grunninn að því að þessi verkefni verði að veruleika á næstunni.“ Miklar vonir eru bundnar við þessa samvinnu sem er í takt við sýn Þróunarfélagsins fyrir svæðið og styður með beinum hætti við grænan iðngarð með hringrásarhugsun.
6. ágúst 2025
Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit hafa bæði sent frá sér yfirlýsingar vegna fyrirhugaðra tolla ESB á kísiljárn. Þar er þess krafist að ríkisstjórn Íslands geri allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir breytingarnar, en ef af verður er ljóst að tollarnir geta haft umtalsverð áhrif á starfsemina á Grundartanga og þar með á nærliggjandi sveitarfélög. Þar er einnig vísað til þeirrar uppbyggingar sem stefnt er að á Grundartanga á komandi misserum og nú er sett er í uppnám. Hér eru hlekkir á yfirlýsingar sveitarfélaganna: Frétt Akraneskaupstaðar Frétt Hvalfjarðarsveitar
24. janúar 2025
Aurora fiskeldi og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit þriðjudaginn 4.febrúar n.k. kl. 20:00. Kynning á matsáætlun er hluti af umhverfismatsferli sem er í vinnslu og mikilvægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér framkvæmdina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Dagskrá kynningarinnar verður eftirfarandi: 1. Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina 2. EFLA mun kynna matsáætlun framkvæmdarinnar og helstu áherslur í komandi umhverfismati 3. Spurningar og svör Frekar eru upplýsingar um verkefnið: Skipulagsgáttin Almenningur og hagaðilar eru hvattir til að mæta
Fleiri færslur