Undirritun viljayfirlýsingar um uppbygginngu græns iðngarðs með hringrásarhugsun

Fulltrúar eigenda Þróunarfélags Grundartanga ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni, ráðherra og verndara ver…
Fulltrúar eigenda Þróunarfélags Grundartanga ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni, ráðherra og verndara verkefnisins, við undirritunina þann 11. maí 2022

Þann 11. maí síðastliðinn skrifuðu eigendur Þróunarfélags Grundartanga og fyrirtækin sem starfa á Grundartangasvæðinu undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu græns iðngarðs með hringrásarhugsun á Grundartanga og fór viðburðurinn fram hjá Norðuráli á Grundartanga. Í uppbyggingunni felst að mótuð verður fyrirmyndar sjálfbærniumgjörð fyrir svæðið og unnið að uppbyggingu hringrásarhagkerfis með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Verndari verkefnisins er Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Lágmörkun umhverfisáhrifa og aukin hagsæld

Fyrir liggur greining KPMG á tækifærum Grundartanga sem græns iðngarðs með hringrásarhugsun og leiðir hún í ljós mikla möguleika Grundartanga á þessu sviði. Áætlað er að ávinningur vegferðarinnar sé margþættur fyrir hagaðila svæðisins og muni skila sér m.a. í lágmörkun umhverfisáhrifa og betri nýtingu hráefna. Einnig mun hún styrkja samkeppnisstöðu Grundartanga sem atvinnusvæðis og þannig auka hagsæld ásamt því að styðja við aðgerðaáætlanir stjórnvalda í loftslagsmálum.

Leiðandi á heimsvísu

Grundartangi sem grænn iðngarður stefnir á að verða leiðandi á heimsvísu enda eru allar forsendur til staðar. Meðal verkefna framundan er stofnun samstarfsklasa aðilanna á Grundartanga og annarra hagaðila og fjölnýtingaverkefni s.s. stofnun hitaveitu sem nýtt getur varma frá Elkem og Norðuráli.

Stærsta iðnaðarsvæði Vesturlands

Á Grundartanga er góð hafnaraðstaða og þar er langstærsta iðnaðarsvæði Vesturlands þar sem starfa um 1.100 manns að jafnaði auk þess sem rekja má um 1.000 afleidd störf til starfsemi svæðisins.